Kortafyrirtækið Valitor skilaði tæplega 20 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins, samanborið við 560 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Viðsnúningurinn nemur því tæplega 580 milljónum króna. Heildarafkoma félagsins á tímabilinu var neikvæð um 14,5 milljónir króna, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.

Heildartekjur Valitor, sem er dótturfélag Arion banka, drógust lítillega saman á milli ára fyrstu sex mánuði ársins, um 2%, og námu 6,7 milljörðum króna á tímabilinu. Þjónustutekjur félagsins jukust á tímabilinu um 5% og námu 5,7 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam 14 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins, samanborið við tap upp á um 965 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra.

Rekstrarkostnaður Valitor nam 2,4 milljörðum króna á tímabilinu og dróst saman um 1,2 milljarða á milli ára. Munar þar mestu um launakostnað sem dróst saman um tæpar 576 milljónir króna og annan rekstrarkostnað sem dróst saman um 553 milljónir króna.  Handbært fé í lok tímabilsins nam 19,3 milljörðum króna.

„Ljóst er að aukin skilvirkni, samþætting grunnkerfa, hagræðingar í húsnæðismálum og aðrar hagræðingar er að skila sér í betri afkomu félagsins,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins. Jafnframt kemur fram að rekstur Valitor sé í samræmi við væntingar og áætlanir stjórnenda og gerir rekstraráætlun félagsins ráð fyrir jákvæðri EBITDA á árinu 2021.

Valitor var selt til fjártæknifélagsins Rapyd þann 1. júlí síðastliðinn en salan bíður samþykkis frá Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu. Söluverð Valitor nam 12,3 milljarða króna eða 100 milljónum bandaríkjadollara. Eigið fé félagsins nam 7,3 milljörðum króna í lok júní.