Hálfsársuppgjör Íbúðalánasjóðs 2011 var staðfest af stjórn sjóðsins í dag. Rekstur sjóðsins skilaði jákvæðri rekstrarafkomu um 1,5 milljarða króna samanborið við tap upp á 1,6 milljarða á sama tíma í fyrra.  Breytinguna má rekja annars vegar til bakfærslu á framlögum í afskriftasjóð þar sem um 5.000 umsóknir bárust um 110% úrræði stjórnvalda en gert var ráð fyrir 9.400 umsóknum.

Þá hefur rekstrarkostnaður aukist á milli ára vegna fjölgunar starfsmanna við úrvinnslu umsókna, umsýslu fasteigna og vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu leigufélaga auk þess sem mikill einskiptis kostnaður fellur til við innlausn fasteigna.

Eigið fé Íbúðalánasjóðs þann 30. júní 2011 var rúmir 10 milljarðar króna samanborið við 8,6 milljarða í árslok 2010. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er nú 2,4% en var 2,2% í upphafi árs. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.