Tekjur framleiðslufyrirtækisins Tjarnargatan ehf. jukust um ríflega 50 milljónir króna milli ára. Árið 2015 voru tekjurnar tæpar 168 milljónir króna, en þær voru tæpar 117 milljónir króna á árinu 2014.

Rekstrargjöld Tjarnargötunnar haldast nokkuð stöðug milli ára, þau eru 137 milljónir á árinu 2015 en voru 134 milljónir ári áður. Viðsnúningur var í afkomu félagsins milli ára, en félagið skilaði hagnaði sem nam tæplega 18,2 milljónum króna á árinu 2015, en það hafði tapað 16,6 milljónum ári áður.

Skuldir félagsins lækkuðu einnig örlítið milli ára. Þær voru tæpar 32,7 milljónir í lok árs 2015 en voru tæpar 37,9 milljónir ári áður.