Um 31,2% þeirra sem taka afstöðu eru fylgjandi náttúrupassa, en 47,3% eru honum andvíg, samkvæmt niðurstöðu nýrrar könnunar MMR. Hefur því töluverður viðsnúningur orðið í afstöðu fólks til passans frá því þegar MMR gerði sambærilega könnun í apríl á þessu ári. Þá voru 47,3% fylgjandi passanum, en 35,2% voru andvíg.
Þeir sem tilheyrðu elsta aldurshópnum voru líklegri til að vera hlynntir náttúrupassa en þeir sem yngri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 36,9% vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 25,6% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).
Þeir sem voru búsettir á landsbyggðinni voru frekar hlynntir náttúrupassa en þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu. Þannig sögðust 35,9% á landsbyggðinni vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 28,3% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkur munur var á afstöðu til náttúrupassa eftir stjónmálaskoðnunum. Þannig voru þeir sem studdu ríkisstjórnina frekar hlynntir náttúrupassa en þeir ekki studdu ríkisstjórnina. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu ríkisstjórnina sögðust 45,6% vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 22,4% þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina.
Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú að ferðamönnum (íslenskum sem erlendum) verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi?"