Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,19% í dag og endaði í 1,732 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 7,84% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 1,59% í milljarða króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 223,5 krónur. Gengi bréfa Icelandair hækkaði þá einnig, eða um 0,15% í tæplega tveggja milljarða króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 32,70 krónum. Gengi bréfa VÍS hækkaði um 1,10% í aðeins milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf nemur 8,29 kórnum.

Mest lækkaði gengi bréfa Regins um 1,25% í 337 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Regins er þá 19,75 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Haga um 1,04% í 402 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 45,23 krónur. Einnig lækkaði gengi HB Granda um 0,13% í 547 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 39,65 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæpir 6 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,1 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 5,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 8,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 8,3 milljarða króna viðskiptum.