VÍS hagnaðist um tæpa 2,6 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 samanborið við 916 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs. Hagnaður af vátryggingarekstri í fjórðungnum var 321 milljón króna en félagið tapaði 158 milljónum króna á sama tímabili í fyrra.

Samsett hlutfall var 95,3% á fjórðungnum en var 103,5% á sama tímabili á síðasta ári. Tekjur af fjárfestingastarfsemi voru tæpir 2,6 milljarðar króna, samanborið við 1,6 milljarða króna á sama fjórðungi ársins 2020, og nafnávöxtun því 6% á fjórðungnum. Skráð hlutabréf skiluðu 14,4% afkomu.

VÍS hagnaðist þannig um 4,5 milljarða samanlagt á fyrri helmingi ársins en félagið tapaði rétt rúmum milljarði á fyrri helmingi síðasta árs. Arðsemi eigin fjár nam 25,5% á fyrstu sex mánuðum ársins en var neikvæð um 7,4% á sama tímabili á síðasta ári.

Í tilkynningu með uppgjörinu er eftirfarandi haft eftir Helga Bjarnasyni, forstjóra VÍS:

Frábær fjórðungur

„Ég er afar ánægður með afkomu félagsins í fjórðungnum. Fjárfestingarnar gengu vel og er árangurinn einn sá  besti frá skráningu félagsins. Fjárfestingatekjur námu 2,6 milljörðum króna eða 6% nafnávöxtun yfir tímabilið. Skráð hlutabréf skiluðu góðri afkomu eða 14,4% ávöxtun. Einnig var töluverð hækkun á óskráðum eignum félagsins, svo sem Controlant, Kerecis og Ölgerðinni. Tryggingareksturinn er í takt við væntingar en samsett hlutfall fjórðungsins er 95,3%.

Þróun tjónaskuldar

Undanfarna 18 mánuði höfum við innleitt nýja aðferðarfræði við mat á tjónaskuld. Áhrifin á fjórðungnum er 272 milljóna króna gjaldfærsla. Undirliggjandi tryggingarekstur er góður og hefði samsett hlutfall fjórðungsins verið 90,5% án þessara aðgerða. Þessi vinna hefur verið umfangsmikil og því er ég ánægður með að henni sé nú lokið. Á þessu tímabili hefur tjónaskuldin hækkað um rúma þrjá milljarða króna. Nú horfum við til eðlilegra matsbreytinga sem koma til vegna tjónaþróunar hverju sinni. Horfur fyrir árið í heild eru óbreyttar ─ en félagið gerir ráð fyrir að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 97-99%.

Áframhaldandi viðsnúningur í afkomu félagsins

Hagnaður félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins er 4,5 milljarðar króna en á sama tímabili í fyrra var tap upp á rúman milljarð króna. Þetta er því viðsnúningur um 5,5 milljarða króna. Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli er því yfir 50% ─ sem er frábær árangur.

Stafræn vegferð hlýtur alþjóðlega viðurkenningu

Við erum á stafrænni vegferð og ætlum okkur að breyta því hvernig tryggingar virka. Í upphafi árs kynntum við Ökuvísi til leiks sem er byltingarkennd nýjung í ökutækjatryggingum á Íslandi. Viðskiptavinum félagsins er verðlaunað fyrir góðan og lítinn akstur með lægri iðgjöldum. Þessari nýjung hefur verið vel tekið af viðskiptavinum félagsins. Við erum stolt af því að hafa hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir Ökuvísi ─ en nýlega veitti Global Banking & Finance Review® okkur verðlaun fyrir framúrskarandi nýsköpun í þjónustu og vöruþróun. Þessi verðlaun veita okkur byr undir báða vængi ─ og staðfesta að við séum á réttri leið.

Framúrskarandi kaskótrygging með víðtæka vernd

Á fjórðungnum kynntum við til sögunnar stórbætta kaskótryggingu. Við teljum okkur nú bjóða upp á bestu kaskótrygginguna hér á landi, með víðtækustu vernd sem völ er á. Við höldum áfram að breyta því hvernig tryggingar virka ─ og nú erum við að umbylta kaupferli líf- og sjúkdómatrygginga. Við hlökkum til að kynna afrakstur þeirrar vinnu á næstu vikum."