Icelandair og bandaríska flugfélagið JetBlue tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli í punktasöfnun. Það felur meðal annars í sér að félagar í Saga Club geta safnað Vildarpunktum og Kortastigum á öllum flugleiðum JetBlue. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Á sama hátt geta félagar TrueBlue fríðindaklúbbi JetBlue safnað punktum í öllum flugleiðum Icelandair. Icelandair fagnar samstarfinu með JetBlue með tvöföldum Vildarpunktum ef félagar ef félagar fljúga fyrir 7. júlí.

„Í dag eru fimm ár síðan Icelandair og JetBlue tóku fyrstu skrefin í samstarfi sem síðan hefur styrkst ár frá ári“, segir Jamie Perry, framkvæmdastjóri markaðsmála JetBlue. „Samkomulagið sem við kynnum nú er spennandi viðbót fyrir viðskiptavini beggja flugfélaga“.

„Samkomulagið við JetBlue gefur farþegum beggja flugfélaga tækifæri til þess að safna fleiri punktum en áður. Við fögnum því að geta boðið farþegum Icelandair nýja möguleika um leið og við bjóðum fjölmarga viðskiptavini JetBlue velkomna til okkar“, segir Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.