Svana Gunnarsdóttir
Svana Gunnarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið MainManager, sem náð hefur árangri á erlendum mörkuðum með hugbúnaðarkerfi sín fyrir fasteignir hefur verið selt til norska félagsins View Software.

Frumtak slhf. hefur selt hlut sinn í MainManager við kaup View Software á félaginu.  View Software mun þannig styrkja stöðu sína á markaði og verða með skrifstofur í átta löndum, þ.á.m. Reykjavík.

Í tilkynningu um fjárfestinguna er sagt að mikilvægi fasteignastjórnunar sé stöðugt að aukast. Fasteignir séu ábyrgar fyrir 40% af allri kolefnislosun í heiminum, en 11% af þessari losun eru vegna framleiðslu á efnum og verktakavinnu.

Á sama tíma er heimurinn að ganga í gegnum mesta byggðavöxt í sögunni.  Það bætast við um 1,5 milljón manna við íbúatölu í borgum í hverri viku. Þetta þýðir að kolefnislosun í byggingargeiranum hefur haldið áfram að hækka um 1% árlega frá 2010.

Það er áætlað að tveir þriðju bygginga sem eru til í dag verði ennþá til 2050. Á sama tíma hafa endurbætur á byggingum minna en 1% árleg áhrif á núverandi byggingar. Þetta er sögð vera mikil loftslagsáskorun og á sama tíma frábært tækifæri til að nýta tæknina til þess að hafa jákvæð áhrif.

„Teymið hjá Mainmanager er ánægt með að verða hluti af teyminu hjá View Software. Þar höfum við fundið samstarfsaðila sem rímar fullkomlega við okkar framtíðarsýn og metnað til þess að verða leiðandi fyrirtæki í þessum iðnaði á Norðurlöndunum,” sagði Gunnlaugur B. Hjartarson, stofnandi MainManager ehf.

„Við erum að sjá miklar breytingar í byggingariðnaðinum þar sem fasteignaeigendur eru að verða miklu meira meðvitaðir um stöðu eigna sinna með því að nota fasteignastýringakerfi. Það gerir þeim kleift að taka betri ákvarðanir og gera ný verkefni meira sjálfbær.“

Sten-Roger Karlsen, forstjóri View Software segir fasteignastjórnun vera markað sem hafi verið í örum vexti á heimsvísu.

„Í framtíðinni þarf betri lausnir til að tryggja sjálfbærni og samtengingu hinna ýmsu sviða, hlutverka og kerfa. Með kaupunum á MainManager styrkjum við stöðu okkar sem framleiðandi sjálfbærra fasteignakerfa. Þetta er líka stórt skref til frekari vaxtar á evrópskum markaði,“ sagði Sten-Roger Karlsen, forstjóri View Software.

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks segir MainManager vera frábært fyrirtæki sem sé í fremstu röð í nýsköpun í fasteignarekstri.

„Frumtak hefur verið hluthafi í áratug og stutt vel við félagið. Það hefur verið vegferð að fylgjast með sókn félagsins á erlendan markað og verða leiðandi í sjálfbærum lausnum fasteignastjórnunnar,“ segir Svana.

„Það er sérstaklega ánægjulegt þegar félögin í eignasafni Frumtaks ná þessum árangri og leggja þannig sitt af mörkum til þess að gera sprota og nýsköpunarfyrirtæki að áhugaverðum fjárfestingakosti.“