Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Vigdís Ósk mun hefja störf á næstu dögum en hún hefur starfað sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þetta kemur fram í frétt á vefsvæði Innaríkisráðuneytisins.

„Vigdís Ósk lauk BA prófi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2006, meistaraprófi 2008 og árið eftir hlaut hún málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Árið 2013 lauk hún LLM prófi í alþjóðlegum refsirétti frá University of Sussex í Bretlandi. Meðfram námi starfaði hún hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra og hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Eftir útskrift starfaði hún sem héraðsdómslögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka. Frá árinu 2015 hefur hún verið lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hún sinnti undirbúningi og gerð umsagna um lagafrumvörp og önnur þingmál og tók þátt í samskiptum við Alþingi. Einnig annaðist hún lögfræðilega ráðgjöf og upplýsingagjöf til sveitarstjórnarmanna.

Vigdís Ósk hefur setið í stjórn Íslenskrar ættleiðingar svo og í stjórn evrópsku og norrænu ættleiðingarsamtakanna, setið í ritstjórn tímaritsins Lögfræðings og í stjórn Félags kvenna í lögmennsku. Þá hefur hún setið í kjörstjórn Garðabæjar bæði fyrir kosningar til Alþingis og forsetakosningar. Maður hennar er Gerald Häsler, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, og eiga þau tvær dætur,“ segir í tilkynningunni.