Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, hefur borist svör frá innanríkisráðherra við fyrirspurn um gjaldtöku fyrir einkanúmer á bifreiðum. Vigdís spurði meðal annars á hvaða lagagrunni ný gjaldtaka fyrir einkanúmer byggir á og hvort sé um að ræða skatt eða gjald. Þá spurði hún hvaða þjónusta sé veitt sem réttlæti gjalddtökuna.

Fram kemur í svörum ráðherra að núgildandi gjaldtaka fyrir einkamerki sé 25 þúsund krónur og byggi á núgildandi umferðarlögum. Samkvæmt ákvæði nýs frumvarps skuli greiða 50 þúsund krónur fyrir réttinn, ef frumvarpið verður að lögum. Auk þess verður gjald fyrir skráningu og skráningarmerkin sjálf. „Gildir rétturinn til átta ára og ber að endurnýja hann að átta árum liðnum vilji rétthafi einkamerkis nota merkið lengur,“ segir í svarinu.

Ráðherra segir að gjaldtakan uppfylli formskilyrði skatts.

„Töluverð umsýsla er við einkanúmer. Má þar helst nefna umsýslu- og rekstrarkostnað, vinnslu og útsendingu bréfa, hlutdeild í tölvurekstri og forritunarvinnu, skráningu réttinda í ökutækjaskrá o.s.frv. Þá má einnig nefna að einkanúmer eru talsvert færri en venjuleg númer og því dreifist umsýslukostnaður, t.d. hlutdeild í rafrænum skrám og ýmsum öðrum föstum kostnaði, á færri einingar en þegar kostnaður er reiknaður við almenn númer. Rétt er að benda á að einkamerki hafa töluverða sérstöðu þar sem einstaklingar og lögaðilar ráða því hvort þeir vilja einkenna ökutæki sín með sérstakri áletrun í formi einkamerkis,“ segir í svari ráðherra við fyrirspurn Vigdísar.