Vigdís Hauksdóttir eini kjörni borgarfulltrúi Miðflokksins og fyrrum þingkona Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformennsku í Miðflokknum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrum forsætisráðherra og þá þingmaður Framsóknarflokksins er formaður Miðflokksins sem hann stofnaði á haustdögum, í aðdraganda kosninganna 2017.

Gunnar Bragi Sveinsson fyrrum utanríkisráðherra og þingmaður flokksins var kjörinn varaformaður flokksins í apríl 2018, og hlaut hann þá 64% atkvæða á móti 36% atkvæða Birgis Þórarinssonar. Landsþing flokksins fer fram 28. og 29. mars komandi.

Hér má sjá tilkynningu Vigdísar um framboðið:

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti varaformanns Miðflokksins sem kosinn verður á Landsþingi flokksins sem fer fram 28. og 29. mars næstkomandi.

Varaformaður Miðflokksins stýrir almennu innra starfi og er tengiliður stjórnar við flokksfélög og sveitarstjórnarfulltrúa. Reynsla mín af þingi og ekki síður í borgarstjórn mun án efa koma til með að styrkja böndin á milli stjórnar flokksins, sveitastjórnarstigsins og grasrótarinnar nái ég kjöri.

Ég vil þakka alla þá hvatningu og stuðning sem ég hef fengið víðs vegar að af landinu til að stíga þetta skref. Ég hef ígrundað málið vel og met það svo að ég geti ekki skorast undan ábyrgð. Jafnframt heiti ég því að vinna af heilindum og dugnaði til að gera hlut Miðflokksins sem mestan í framtíðinni, landi og þjóð til heilla.“