Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi forstjóri BM Vallár, hefur fengið afhent fundargerðir um vinnu stýrinefndar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem samdi við erlenda kröfuhafa á árinu 2009. Fundargerðirnar fékk Víglundur frá efnahags- og fjármálaráðuneytinu fyrir atbeina upplýsinganefndar um úrskurðarmál.

„Það hefur tekið mig tæp 3 ár að slíta þessar og aðrar upplýsingar út úr fjármálaráðuneytinu. Verður að segja eins og er að embættismenn þar á bæ hafa gert allt sem þeim var unnt til að tefja málavinnsluna. Hundsað alla fresti látið vera að sinna leiðbeiningaskyldu ofl.  Sýnist mér að þar á bæ megi margt lagfæra í samskiptum við okkur borgarana og umgengi við stjórnsýslu og upplýsingalög,“ segir Þorsteinn í tilkynningu til fjölmiðla.

Hann segir að eftir yfirferð fundagerðanna og fyrri gagna sem hann fékk með fyrri úrskurðum Úrskurðarnefndar um upplýsingamál telji hann að öll gögn bendi til þess að nefndin hafi í störfum sínum framið alvarleg lögbrot.

„Í framhaldinu ákvað ég að rita bréf til Alþingis og afhenda því fundargerðirnar með beiðni um að það hlutist til um athugun þessa máls og kalli til viðbótar eftir öllum þeim fjölda gagna sem málið varðar og ég hef ekki fengið afhent,“ segir Víglundur. Hann hafi hvatt til þess að fundargerðirnar sem voru ritaðar á ensku verði þýddar og birtar almenningi í samræmi við viðhorf Úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

„Mér sýnist sem allt starf þessarar nefndar hafi miðað að því að hækka skuldabyrði heimila og fyrirtækja í þágu erlendu vogunarsjóðanna  með þáttöku og hlutdeild þeirra sjóða.  Sú hækkun  umfram reglur neyðarlaganna við stofnun nýju bankanna sýnist mér varlega talið nemi um 300 milljörðum.   Það munar um minna.  Þessi fjárhæð er í dag um 17 % af  VLF og orðinn sérstakur viðbótarþröskuldur sem tefur fyrir endurreisn íslenska hagkerfisins og heldur niðri lífskjörum í landinu,“ segir Víglundur.