„Ég lýsi yfir vonbrigðum mínum með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins (FME),“ segir Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður og aðalleigandi B.M. Vallár. Eins og greint var frá í dag hefur FME lokið athugun sinni á verklagi Arion banka og viðmiðum sem hann lagði til grundvallar því hvort samþykkja ætti fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins eða fara fram á gjaldþrot þess. B.M. Vallá fór í þrot vorið 2010. Víglundur hefur haldið því fram að fyrirtækið hans hafi verið á sérstökum aftökulista hjá bankanum. Hann ætlar að kynna ný gögn í málinu í næstu viku.

Víglundur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna athugunar FME á starfsháttum Arion banka. Farið var í athugunina í kjölfar kæru hans á meðferðinni.

Víglundur skrifar:

„Miðað við tilkynningu FME er ljóst að hin svokallaða athugun eftirlitsins  hefur verið yfirborðskennd og fjarri þeirri rannsókn sem stofnuninni bar að framkvæma. Þessi vinnubrögð hefðu ekki átt að koma mér á óvart því þau er í fullu samræmi við vinnulag FME á undanförnum árum, sem hefur fremur snúist um að gæta hagsmuna fjármálafyrirtækjanna en viðskiptavina þeirra. Í næstu viku mun ég boða til blaðamannafundar og sýna þar áður óbirt gögn, máli mínu til frekari stuðnings. Tilkynning um þann fund verður send út þriðjudaginn 4. desember næstkomandi.“