Aðalfundur IGI, Samtaka leikjaframleiðenda, var haldinn í gær á Bryggjunni Brugghúsi að því er kemur fram á vef Samtaka iðnaðarins. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, opnaði fundinn og sagði frá helstu áherslum samtakanna.

Vignir Örn Guðmundsson, formaður IGI, sagði frá síðasta starfsári og kynnti helstu verkefnin framundan. Kristinn Árni Lár Hróbjartsson kynnti niðurstöður skýrslu sem Northstack vann fyrir SI og IGI um leikjaiðnaðinn og Ólafur Andri Ragnarsson, einn af stofnendum IGI og fráfarandi stjórnarmaður, sagði frá upphafi IGI og minnistæðum atriðum í sögu samtakanna. Ólafur Andri var jafnframt fundarstjóri.

Í nýrri stjórn IGI eru: Vignir Örn Guðmundsson, CCP, er formaður, Stefán Björnsson, Solid Clouds, er varaformaður, Ívar Kristjánsson, 1939 Games, Haukur Steinn Logason, Radiant Games, og Margrét Júlíana Sigurðardóttir, Rosamosi. Varamenn eru Alexandra Diljá Bjargardóttir, CCP, og Jóhann Helgi Ólafsson, Mousetrap.

p.p1 {margin: 0.0px 0.0px 0.0px 0.0px; font: 11.0px Helvetica; -webkit-text-stroke: #000000} p.p2 {margin: 0.0px 0.0px 0.0px 0.0px; font: 11.0px Helvetica; -webkit-text-stroke: #000000; min-height: 13.0px} span.s1 {font-kerning: none}