Þar var skýrsla stjórnar kynnt, öðrum fundarstörfum sinnt og síðan var gengið til kosninga í stjórn. Auk þess sem Jón Þór, þingmaður Pírata, kynnti þingstarfið og svaraði spurningum.

Í kosningum til stjórnar voru eftirtaldir aðilar kosnir í stjórn Ungra Pírata sem aðalmenn Vignir Árnason, Valborg Sturludóttir, Sigmundur Þórir Jónsson, Gamithra Marga, Hjalti Björn Hrafnkelsson. Varamenn eru Sophia Kistenmacher og Einar Hrafn Árnason. Á fundinum var síðan Vignir Árnason kosin formaður Ungra Pírata.

Síðan var eftirfarandi viljayfirlýsing nýkjörinnar stjórnar Ungra Pírata samþykkt:

„Við í stjórn Ungra Pírata hvetjum stjórnvöld til að lækka kosningaaldur í sveitastjórnarkosningum niður í 16 ár. Við skorum líka á stjórnvöld að búa þannig um að auðveldara sé fyrir ungt fólk á að kaupa sína fyrstu eign eða leigja. Við hvetjum jafnframt ungt fólk til að láta til sín taka í samfélaginu og minnum á að allir stjórnarfundir sem og aðrir fundir Ungra Pírata eru opnir öllum almenningi.“

Gert er ráð fyrir að vinna meira með þessi málefni á komandi vetri.