Viktor Ólason hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Kúkú Campers ehf. Kúkú Campers sem var stofnað árið 2012 með einum gömlum Renault Kangoo hefur vaxið jafnt og þétt undir styrkri stjórn þeirra Steinarrs Lár og Lárusar Guðbjartssonar. KúKú Campers er í dag stærsta húsbílaleiga landsins með yfir 250 bíla til leigu að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Stofnendur KúKú Campers stefna nú í víking og hefur fyrsta starfsstöðin þegar verið opnuð í Colorado í Bandaríkjunum. „Nú ætlum við Lárus að einhenda okkur í uppbyggingu á Kúkú vörumerkinu á erlendri grundu og því höfum við fengið Viktor Ólason til liðs við okkur og mun hann leiða starfsemina hér heima á Íslandi.  Viktor hefur áralanga reynslu úr íslensku atvinnulífi og var m.a. forstjóri Tals og Kreditkorts og mun sú reynsla nýtast vel inní Kúkú heiminn”  segir Steinarr Lár sem staðið hefur vaktina linnulaust frá fyrsta degi.