Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 25. júlí til og með 31. júlí 2008 var 81. Þar af voru 69 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.162 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,7 milljónir króna.

17 kaupsamningar á Akureyri og Árborg

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 9 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 210 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 8 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 177 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljónir króna.