Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst um 7% í vikunni en hafði þó dregist saman um 19% í vikunni þar á undan. Veltan í vikunni nam rétt rúmum 1,2 milljarða króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Þetta er í fimmta skiptið á síðustu þrettán vikum, eða frá því í byrjun desember, sem veltan er yfir einum milljarði króna en fjögurra vikna meðalvelta nemur nú rétt rúmlega 1,1 milljarði króna en meðalvelta frá áramótum er 983 milljónir á viku.

Um miðjan janúar fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug og nú er 12 vikna meðalvelta um 909 milljónir króna og hefur farið hækkandi síðustu fjórar vikur.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 69% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 44 í vikunni en 37 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 33 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 27,7 milljónir króna og lækkar um tæpar 3 milljónir milli vikna. Það er lítillega undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið 29,9 milljónir frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 59% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.