Vilborg Þórarinsdóttir er nýr útibússtjóri Íslandsbanka á Höfðabakka. Hún hóf bankastörf 1979 og hefur öðlast mikla starfsreynslu á því sviði. Vilborg var ráðin útibússtjóri á Suðurlandsbraut 1999 og gegndi því starfi þar til snemma á þessu ári.

Vilborg lauk prófi  frá Verslunarskóla Íslands og rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Útibú Íslandsbanka eru 14 talsins en bankinn rekur hagkvæmasta útibúanet landsins. Höfðabakkaútibúð þjónar stóru svæði í austurhluta borgarinnar þar sem reynslumiklir starfsmenn þjónusta bæði fyrirtæki og einstaklinga.