Í dag fyrsta vetrardag úthluta Vildarbörn Icelandair [ ICEAIR ] styrkjum til 40 barna til þess að komast í draumaferðina ásamt fjölskyldum sínum og aðstoðarfólki. Athöfnin fer fram í Víkingasal Hótel Loftleiða þar sem flugfreyjukór Icelandair mun flytja lög í tilefni dagsins. Jafnframt mum söngkonan Kenya koma fram og flytja lagið “Réttum hjálparhönd” sem hún hefur gefið Vildarbörnum. Með þessari úthlutun hafa Vildarbörn Icelandair styrkt 70 íslensk börn á árinu, en í ár er einmitt 70 ára afmæli Icelandair, til að komast í draumaferðina, auk þess sem 10 erlend börn voru styrkt til að komast í draumaferðina á árinu.

Við þetta sama tækifæri voru afhentar tæplega 3 milljón vildarpunkta sem söfnuðust í Reykjavíkurmaraþoninu. Icelandair Group hét á starfsmenn og greiddi 3.000 punkta fyrir hvern hlaupinn km til Vildarbarna. En þessir punktar eru einmitt mikilvægur liður í fjársöfnun sjóðsins, þar sem þeir eru notaðir sem gjaldmiðil fyrir þær flugferðir sem boðið er í.

Sigurður Helgason formaður stjórnar Vildarbarna Icelandair sagði við þetta tilefni, „þessi einstaki sjóður sem Icelandair stofnaði árið 2003 hefur nú gert hundruðum barna kleyft að komast í langþráð ferðalag. Sjóðurinn hefur vaxið og dafnað frá stofnun, fyrst og síðast fyrir örlæti farþega Icelandair. Það örlæti hefur orðið til þess að okkur hefur tekist að uppfylla drauma fleiri barna en okkar björtustu vonir stóðu til fyrst þegar við stofnuðum sjóðinn og við viljum því þakka öllum þeim sem stutt hafa sjóðinn. Allir sem komið hafa að sjóðnum hafa lagt sig fram í starfi fyrir sjóðinn og við þökkum starfsfólki Icelandair fyrir þeirra framlag til sjóðsins.“

Vildarbörn Icelandair er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Markmiðið er að gefa börnum á Íslandi og í nágrannalöndunum tækifæri til ferðalaga ásamt fjölskyldum sínum. Sjóðurinn var stofnaður af Icelandair sumardaginn fyrsta árið 2003.

Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Sjóðurinn er fjármagnaður með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með afgangsmynt sem farþegum býðst að setja í umslög sem eru í sætisvösum véla Icelandair og flugfreyjur/þjónar félagsins taka á móti umslögunum. Í öðru lagi með framlögum frá félögum í Vildarklúbbi Icelandair, sem geta gefið ferðapunkta sína til sjóðsins. Í þriðja lagi með stofnframlagi Icelandair að fjárhæð 3 milljónir króna. Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Tónlist Kenyu er best lýst sem R&B með nýtískulegu ívafi. Von er á fyrstu plötu Kenyu fyrir jól. Á plötunni vinna tónlistamenn á heimsmælikvarða með henni, svo sem Eyþór Gunnarsson og Jóhann Ásmundsson úr Mezzoforte. James “Bonzai” Caruso sér um hljóðblönduna en hann vann til Grammy verðlauna fyrir hljóðblöndun fyrir Damion Marley. Valgeir Sigurðsson sér einnig um hljóðblöndun en hann hefur meðal annars unnið með listamönnum eins og Björk Guðmundsdóttur og Bonnie “Prince” Billy. Frekari upplýsingar um Kenyu á http://www.myspace.com/kenyaiceland