Alls 20 þúsund sæti sem frátekin voru í vélum Icelandair fyrir tilboð til félaga í Vildarklúbbnum seldust upp í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Tilboðið hófst í gærmorgun og átti að standa yfir í þrjá daga. Síðdegis í dag höfðu hinsvegar sætin selst upp.

„Ég minnist þess ekki að hafa fengið önnur eins viðbrögð við tilboði og nú," segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair í tilkynningunni.

„Við tókum að þessu sinni frá 20 þúsund sæti í flugi okkar til og frá landinu og buðum félögum í Vildarklúbbnum á góðum kjörum, eða með 50% punktaafslætti. Salan á þessu tilboði átti að standa í þrjá sólarhringa, en fór langt fram úr væntingum okkar og síðdegis í dag voru sætin uppseld. Þetta er mesti bókunarhraði sem við höfum nokkurntíma séð hér á landi," segir Gunnar Már.