Verkefnisstjórn á vegum stjórnvalda ætlaði eftir 1. apríl síðastliðinn að ræða við Alcoa og annað fyrirtæki um nýtingu orku „til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum“. Samkvæmt yfirlýsingu Alcoa hafa forsvarsmenn fyrirtækisins ekki heyrt aukatekið orð frá nefndinni frá því í maí á þessu ári. Yfirlýsing Alcoa er send af tilefni orða iðnaðarráðherra í Kastljósi sjónvarpsins í gær, fimmtudag.

Orðrétt segir í yfirlýsingunni:

Í Kastljósþætti Sjónvarpsins í gærkvöldi, fimmtudaginn 5. júlí, kaus hæstvirtur iðnaðarráðherra, Katrín Júlusdóttir, að gera aðkomu Alcoa að uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík ótrúverðuga. Auk þess fullyrti ráðherrann að stjórnvöldu biðu enn eftir upplýsingum frá Alcoa á Íslandi um það hvort fyrirtækið hefði áhuga á að byggja álver á Bakka eða ekki.  Frá því að vinna við verkefnið hófst hefur Alcoa af heilum hug unnið að undirbúningi að byggingu álvers á Bakka. Hins vegar er verkefnið af slíkri stærðargráðu að ekki er forsvaranlegt að ráðast í framkvæmdir nema fyrir liggi upplýsingar um tilktækt orkumagn og samkeppnishæft orkuverð þegar álvinnsla getur hafist.

Stjórnvöld ákváðu á sínum tíma að setja framkvæmdina í sameiginlegt umhverfismat. Með þeirri ákvörðun hafa stjórnvöld tafið niðurstöðu úr umhverfismatinu um a.m.k. eitt og hálft ár og þar með komið í veg fyrir að hægt væri að svara grundvallarspurningum um orkumagn.

Í maí sl. barst Alcoa á Íslandi bréf, dagsettu 15. maí, frá verkefnisstjórn Nausts, sem sett var á laggir til að gera athugun á mögulegum samstarfsaðilum varðandi nýtingu orku til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum.  Í því bréfi kom fram að verkefnisstjórninni hefði verið falið „að ljúka fyrstu athugun fyrir 1. apríl 2010 og nýta svo tímann til 1. okt. 2010 til nánari viðræðna og samningagerðar við þá sem til greina koma.“ Í bréfinu er einnig tekið fram að Alcoa hafi, ásamt einu öðru fyrirtæki, uppfyllt öll skilyrði við val á samstarfsaðila á sviði áliðnaðar. Í niðurlagi bréfsins segir: „Í framhaldi af þessari niðurstöðu mun verkefnisstjórnin setja sig í samband við Alcoa til frekari viðræðna varðandi nýtingu orkunnar til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum.“ Alcoa hefur ekki heyrt aukatekið orð frá nefndinni frá því að umrætt bréf var skrifað.

Í umræddum kastljósþætti gat ráðherrann þess að Landsvirkjun hefði lagt á annan tug milljarða króna í rannsóknir á svæðinu. Í þessu sambandi er rétt að halda því til haga, sem ráðherrann gat ekki, að Alcoa hefur lagt fram um einn og hálfan milljarð króna í verkefnið. Varla ber það vott um áhugaleysi fyrirtækisins á verkefninu. Það skal tekið fram að Alcoa á Íslandi hefur fyrir löngu upplýst að það sé reiðubúið til að áfangaskipta verkefninu í samráði stjórnvöld.

Ákvörðun um hvort ráðist verður í jafn stórt verkefni og byggingu álvers á Bakka verður ekki tekin nema fyrir liggi nokkuð nákvæmar upplýsingar um magn, verð og afhendingu á orku ásamt því að meta nákvæmlega öll hugsanleg áhrif á umhverfið. Að því hefur verið unnið um nokkurt skeið og þeirri vinnu er alls ekki lokið. Hins vegar er nokkuð ljóst af framangreindum ástæðum og fleirum sem of langt mál er að fara yfir hér að stjórnvöld virðast hafa takmarkaðan áhuga á að haldið sé áfram við undirbúning að byggingu álvers á Bakka.