Alls sóttu 19 manns um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins (FME) en umsóknarfrestur rann út 11. mars.

Í hópi umsækjenda má meðal annars finna Helga Magnús Gunnarsson, saksóknara efnahagsbrota og Vilhjálm Bjarnason, lektor og formanns félags fjárfesta.

Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri lét af störfum þann 1. mars síðastliðinn.

Umsækjendurnir eru sem fyrr segir 19 talsins samkvæmt vef FME.

Þeir eru:

  • Dr. Arnar Bjarnason, hagfræðingur
  • Arnbjörn Ingimundarson, framkvæmdastjóri
  • Árni Thoroddsen, kerfisfræðingur
  • Bolli Héðinsson, MBA
  • Guðmundur Ásgeirsson, vefforritari
  • Gunnar Þ. Andersen, framkvæmdastjóri
  • Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- og lögfræðingur
  • Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota
  • Ingólfur Guðmundsson, útibússtjóri
  • Jóhann Gunnar Ásgrímsson, viðskiptafræðingur
  • Jóhann Halldór Albertsson, lögmaður
  • Magnús Ægir Magnússon, MBA
  • Már Wolfgang Mixa, sérfræðingur
  • Tamara Lísa Roesel, verkfræðingur
  • Sigrún Helgadóttir, MBA
  • Sigurður Guðjónsson, lögmaður
  • Vilhelm R. Sigurjónsson, viðskiptafræðingur
  • Vilhjálmur Bjarnason, lektor
  • Þorsteinn Ólafs, viðskiptafræðingur.