Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Viðskiptablaðið að ekkert nýtt sé að frétta af stöðu mála.

Hann situr nú á fundi, ásamt forsvarsmönnum ASÍ og bíður fregna úr Ráðherrabústaðnum.

Vilhjálmur sagði í samtali við Viðskiptablaðið áðan að aðilar vinnumarkaðarins væru á vaktinni og fylgdust með gangi mála og sérstaklega því sem viðkemur þeim.