Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, leiðir málefnanefnd flokksins um endurreisn í íslensku efnahagslífi.

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá þessu fyrir stundum. Geir kvaðst sjálfur myndu starfa í nefndinni sem og varaformaður flokksins. Fleiri yrðu kallaðir til.

Hann sagði að nefndarstarfið yrði grunnurinn að ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um endurreisn í íslensku efnahagslífi.