Vilhjálmur prins var næstum því fyrir byssukúlu á æfingu árið 2006. Þetta kom fram í réttarhöldum í morgun vegna hlerunarhneykslisins, þar sem verið er að rétta yfir yfirmönnum margra breskra æsifréttablaða.

Kviðdómur heyrði skilaboð sem Vilhjálmur prins skildi eftir á talhólfi Kate Middleton, sem síðar varð eiginkona hans. Hann var á æfingu fyrir liðþjálfa í Sandhurst þegar hann hringdi í Kate.

Í öðrum skilaboðum sagði hann við Kate að hann væri að fara á veiðar með hundum og bauð Kate að koma með sér.

BBC greindi frá.