Vilhjálmur Vilhjálmsson hefur tekið við starfi forstjóra HB Granda. Hann tekur við af Eggerti Benedikt Guðmundssyni, sem ráðinn var forstjóri N1 í sumar.

Fram kemur á vefsíðu HB Granda, að Vilhjálmur er fæddur 14. desember 1953 og hafi hann undanfarin átta ár stýrt uppsjávardeild félagsins. Áður var hann framkvæmdastjóri Tanga á Vopnafirði.