Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur gert upp hug sinn um pólitíska framtíð sína, í það minnsta til skamms tíma. Vilhjálmur hefur ákveðið að sitja áfram sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, en segir það opið hver mun taka við borgarstjórastól þegar Ólafur F. Magnússon stígur niður úr honum. Yfirlýsing Vilhjálms hljóðar svo:

„Hvað mig varðar er opið hver tekur við embætti borgarstjóra af hálfu Sjálfstæðisflokksins í mars  2009. Borgarstjórnarflokkurinn mun ákveða borgarstjóraefnið í sameiningu þegar nær dregur.

Í samráði við borgarstjórnarflokkinn og með stuðningi hans hef ég ákveðið að gegna áfram starfi oddvita borgarstjórnarflokksins og formanns borgarráðs. Borgarfulltrúar flokksins munu áfram vinna saman af heilum hug í þágu borgarbúa það sem eftir lifir kjörtímabilsins.

Ég mun leggja mig allan fram við að vinna með öllum borgarbúum eins og ég hef gert hingað til."

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur einnig sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir óskoruðum stuðningi við Vilhjálm og nýútgefna yfirlýsingu. Undir yfirlýsinguna skrifa allir borgarfulltrúar sem og varaborgarflulltrúar, að Vilhjálmi undanskildum.

„Borgarstjórnarflokkurinn tekur undir það með Vilhjálmi, að ekki sé ástæða til að ákveða nú hver verði borgarstjóri eftir rúmt ár. Sú ákvörðun verður tekin af borgarstjórnarflokknum í sameiningu þegar nær dregur og með hagsmuni flokksins og borgarbúa að leiðarljósi."