Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi stjórnarformaður Eirar, hefur ákveðið að skila brúðargjöf frá Eir að andvirði 100.000 krónur. Sigurður H. Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar, sagði í bréfi til stjórnar Eirar að félagið hafi, að ósk Vilhjálms, gefið honum brúðkaupsgjöfina.

„Í ljósi fjölmiðlaumræðu um brúðargjöf til okkar hjóna frá Eir í júní 2008 og með hvaða hætti fyrrverandi forstjóri Sigurður H. Guyðmundsson hefur matreitt málið í fjölmiðlum höfum við ákveðið að skila þessari brúðargjöf og endurgreiða andvirði hennar til Eirar: Það eru fráleitar ásakanir fyrrverandi forstjóra að ég hafi skipað honum að gera þetta Þeir sem til þekkja vita að fyrrverandi forstjóri skipaði en lét aldrei skipa sér," segir Vilhjálmur í yfirlýsingu.