Ráðherrarnir Eygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eiga að biðjast afsökunar á því að hafa greitt atkvæði með því að ákæra Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu, að kröfu Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS). Í ályktun sem sambandið hefur sent frá sér segir að í fyrravor hafi SUS talið framgöngu þeirra þingmanna sem stóðu að ákærunni svo alvarlega atlögu að mannréttindum og réttarríkinu að Sjálfstæðisflokkurinn ætti ekki að taka þátt í ríkisstjórn með þeim þingmönnum. Nú hafi landsdómur sýknað Geir af öllum hinum veigamestu ákæruliðunum og laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsins lýst þeirri skoðun sinni að gengið hafi verið of langt með ákæru á hendur Geir og hún verið af pólitískum toga.

Í ályktun SUS í dag segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi nú myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokki en tveir ráðherrar þess flokks greiddu atkvæði með ákærunni, þau Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfisráðherra.

Ungir sjálfstæðismenn skori á Eygló og Sigurð Inga að biðjast afsökunar á að hafa tekið þátt í samþykkt ákærunnar á hendur Geir.