Samtök íslenskra sveitarfélaga hefur látið gera myndbönd sem eiga að höfða sérstaklega til ungs fólks og vekja athygli þeirra á komandi sveitarstjórnarkosningum. Myndböndin eru bæði á íslensku, ensku og pólsku og eiga að hvetja ungt fólk til að hafa áhrif á það hverjir stýri sveitarfélögunum næstu fjögur árin. Myndböndin eru birt á samfélagsmiðlum.

Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram 31. maí næstkomandi og verður kosið í 74 sveitarfélögum. Í nokkrum er reyndar sjálfkjörið.

Fram kemur í tilkynningu frá Samtökum íslenskra sveitarfélaga að á undanförnum áratugum hafi dregið úr kosningaþátttöku í sveitarstjórnarkosningum. Kosningaþátttaka í kosningum 2010 var sú lægsta í 40 ár eða 73,5%. Á tímabilinu 1970 til 2010 var kosningaþátttaka mest árið 1974 eða 87,8%. Í öðrum norrænum ríkjum hefur sama þróun átt sér stað og sífellt færri nýtt sér kosningaréttinn. Þar hefur kosningaþátttakan einnig verið greind niður á aldurhópa og eftir uppruna. Þannig hefur komið í ljós að yngri kjósendur og innflytjendur hafa síður nýtt sér kosningarréttinn en þeir sem eldri eru eða þeir sem eru innfæddir.

Greining sem þessi hefur ekki farið fram hér á landi og því ekki hægt að fullyrða með vissu að yngri kjósendur séu ekki að nýta sér kosningarréttinn. Ætla megi að sama þróun sé hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum.