Samtök iðnaðarins (SI) hafa farið þess á leit við Fjármálaeftirlitið (FME) að það beini þeim tilmælum til Lýsingar að „virða skýrar og afdráttarlausar niðurstöður dómstóla um það hvernig haga skuli endurútreikningum á kaupleigusamningum er hafa að geyma ólögmæta gengistryggingu."

Í tilkynningu Samtaka iðnaðarins segir að 6. nóvember hafi Hæstiréttur kveðið upp dóm í máli Lýsingar gegn Eykt umað Lýsingu bæri að leiðrétta kaupleigusamninga sem Eykt gerði við fyrirtækið.

„Samtök iðnaðarins hafa án árangurs óskað eftir svörum frá Lýsingu um hvort fyrirtækið hyggist viðurkenna fordæmisgildi dómsins er varðar aðra kaupleigusamninga fyrirtækisins og ef svo er hvenær það hyggist hefja þær leiðréttingar," segir í tilkynningunni. „Auk þess að virða SI ekki svars hefur Lýsing ekki birt leiðbeiningar eða opinberað afstöðu sína til málanna. Þó hafa félagsmenn SI, sem óskað hafa eftir svörum varðandi sín mál hjá Lýsingu, fengið þau viðbrögð að fyrirtækið telji dóminn ekki vera fordæmisgefandi fyrir aðra kaupleigusamninga fyrirtækisins sem hafa að geyma ólögmæta gengistryggingu.

Í umræðum á Alþingi í gær gerði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks vinnubrögð Lýsingar að umræðuefni og nefndi dæmi um fyrirtæki sem í kjölfar dóms þurfti að skila inn tíu stórtækum vinnuvélum og einni jeppabifreið. Verðmat Lýsingar á tækjunum var rúmar 46,6 milljónir króna. Þau voru síðan seld á nauðungaruppboði um helgina á 73 milljónir. Markaðsvirði þessara tækja, samkvæmt mati löggiltra sala, er tæpar 119 milljónir króna.

Samtök iðnaðarins hafa lengi unnið að því að leiða þessi mál til lykta. Margt hefur áunnist og bæði Landsbankinn og Íslandsbanki hafa tekið mark á niðurstöðum dómstóla og gert upp við sína viðskiptavini. Sama verður ekki sagt um Lýsingu.

Innan raða SI eru fjölmörg fyrirtæki sem nýttu sér kaupleigusamninga Lýsingar til að fjármagna rekstur sinn. Samtök iðnaðarins telja með öllu ólíðandi að fyrirtækið ætli dómstólum að kveða úr um hvert einstakt mál og draga þannig á langinn að fyrirtæki sem nýttu sér kaupleigusamninga fái úrlausn mála sinna og Lýsing geti síðan að auki metið vinnutæki og tól langt undir markaðsvirði."