Katrín Jakobsdóttir, þingkona Vinstri grænna, og Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa lagt fram þingsályktunartillögu um ráðstafanir gegn málverkafösun. Markmið hennar er að gripið verði til ráðstafana gegn málverkafölsun til þess verja listamenn og listaverkaeigendur fyrir fjárhagstjóni vegna falsana og ekki síður til að vernda íslenska menningararfleifð fyrir þeim spellvirkjum sem falsanir fela í sér.

Í greinargerð segir að talið sé að á 10. áratug síðustu aldar hafi allt að 900 fölsuð myndverk (málverk og teikningar) verið í umferð á Íslandi og gengið þar kaupum og sölum. „Stóra málverkafölsunarmálið“ og niðurstaða þess í Hæstarétti árið 2004 leiddu í ljós ýmsa veikleika á íslenskum listmunamarkaði, þar sem helst til auðvelt virðist að koma fölsuðum myndverkum í umferð og varnir við slíku athæfi reyndust næsta litlar.

Í tillögu Katrínar og Vilhjálms er gert ráð fyrir að Alþingi feli mennta- og menningarmálaráðherra að skipa hóp með fulltrúum Listasafns Íslands, Myndstefs, Bandalags íslenskra listamanna, Sambands íslenskra myndlistarmanna, embættis sérstaks saksóknara, sem fer með efnahagsbrot, og mennta- og menningarmálaráðuneytis. Hlutverk hópsins verður að gera tillögur að ráðstöfunum gegn málverkafölsunum og skilgreiningu á ábyrgð hins opinbera í lögum gagnvart varðveislu þessa hluta menningararfsins. Þá fái hið opinbera frumkvæðisskyldu til að rannsaka og eftir atvikum kæra málverkafalsanir.