Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, fundaði í síðustu viku með Rick Smith, framkvæmdastjóra Taser til þess að ræða upptöku rafbyssna hjá lögreglunni hér á landi. Morgunblaðið greinir frá þessu.

„Okkur þykir stórt stökk á milli þess að nota kylfur og piparúða annars vegar og svo yfir í skotvopn sem er næsta úrræði. Því teljum við mikilvægt í valdbeitingarstiganum að fá tæki sem getur valdið mun minni líkamlegum skaða á einstaklingum,“ segir Snorri í samtali við Morgunblaðið.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einnig hitt Rick Smith á fundi og segist í samtali við Morgunblaðið vera að vinna að málinu innan stjórnkerfisins. Hann segir rök fyrir upptöku rafbyssna þríþætt. „Að auka öryggi lögreglumanna og þeirra sem þarf að hafa afskipti af. Í annan stað að lækka sjúkra- og veikindakostnað hjá Sjúkratryggingum. Í þriðja lagi er þetta mikilvægt tæki til að auka möguleika kvenna í starfi til þess að beita valdi,“ segir hann.