Tryggvi Þór Herbertsson og Pétur Blöndal, þingmenn Sjálfstæðisflokksins og fulltrúar hans í efnahags- og skattanefnd, fara fram á að nefndin leiti til Ríkisendurskoðunar og biðji um úttekt á af hverju tekjur af skattabreytingum hafi ekki skilað sér í ríkissjóð.

Í bréfi sem þeir Tryggvi Þór og Pétur Blöndal senda Helga Hjörvari, formanni efnahags- og skattanefndar, segir að við afgreiðslu fjárlaga 2010 hafi skatttekjur síðasta árs taldar muni nema 414 milljörðum króna. Það er 56 milljarða króna aukning frá áætluðum skattekjum ársins 2009, eins og þær voru metnar á sama tíma.

Þá segir að við útgáfu fjárlagafrumvarps 2011 voru skatttekjur ríkissjóðs árið 2010 taldar nema 421 milljörðum króna, um 36 milljarða aukning frá skatttekjum ársins 2009 sem reyndust vera 385 milljarðar.

Samkvæmt mánaðaruppgjöri A-hæuta ríkissjóðs fyrir síðasta árs eru skatttekjur ríkissjóðs á árinu 2010 taldar nema 403,3 milljörðum króna, eða 18 milljarða aukning frá fyrra ári.

„Nú er ljóst að umfangsmiklar skattkerfisbreytingar og skatthækkanir hafa átt sér stað undanfarin 2 ár. Af þessum tölum að dæma hafa þessar breytingar ekki skilað sér í aukum tekjum fyrir ríkissjóð eins og áætlað var og munar þar gríðarlegum fjárhæðum, tæpum 38 milljörðum. Því fara fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd fram á að nefndin leiti til Ríkisendurskoðunar og biðji um úttekt á af hverju tekjur af hverri skattbreytingu fyrir sig hafi ekki skilað sér í ríkissjóð.“