Fjórir þingmenn Samfylkingarinnar, með Margréti Gauju Magnúsdóttur í broddi fylkingar, vilja að umhverfisráðherra láti kanna þjóðhagslega hagkvæmni þess að minnka plastpokanotkun hér á landi.
Í þingsályktunartillögu um málið er gert ráð fyrir að gerð verði könnun á því hvaða kostir séu hagkvæmir og í því tilliti verði litið til annarra ríkja í Evrópu þar sem markvisst hefur verið dregið úr plastpokanotkun.
Í þingsályktunartillögunni segir að alkunna sé að plastpokar og aðrar plastumbúðir utan um matvæli og efnavörur hafi skaðleg áhrif á umhverfið. „Plast eykur eftirspurn eftir olíu og það brotnar treglega niður í náttúrunni. Því hafa nokkur ríki í Evrópu gripið til úrræða eins og banns eða skattlagningar á notkun plastpoka til að draga úr magni þeirra í umferð og þar með neikvæðum áhrifum þeirra á umhverfið. Í þessu tilliti má sérstaklega benda á Írland, Þýskaland, Holland, Belgíu, Sviss og Ítalíu,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
Flutningsmenn segjast telja að ástæða sé til að kannað verði með heildstæðum hætti hvort rétt sé að grípa til sambærilegra aðgerða hér og gert hefur verið í sumum Evrópuríkjum til að draga úr notkun plastpoka.
Auk Margrétar Gauju eru Oddný G. Harðardóttir, Össur Skarphéðinsson og Björk Vilhelmsdóttir flutningsmenn tillögunnar.