Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands mótmælir ákvörðun kjararáðs þar sem laun dómara eru hækkuð um 300.000 – 560.000 kr á sama tíma og laun hins almenna launamanns hafa hækkað um um það bil 30.000 kr. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá RSÍ.

Þar segir að ákvarðanir um að deila meiri gæðum til þeirra sem meira hafa er óásættanlegt og að hækkun launa í stjórnunarstöðum ýmissa fyrirtækja hér á landi bendi til þess að sama launastefna sé viðhöfð og áður en íslenskt efnahagskerfi hrundi.

„Við sáum þá að ofurlaunastefna fyrirtækjanna hafði ekkert með gæði fyrirtækjanna að gera og því er ekki ástæða til að ætla að svo sé nú,“ segir í tilkynningunni.

„Miðstjórn RSÍ tekur undir áskorun ASÍ til stjórnvalda um að tekið verði upp alvöru hátekjuskattur á ofurlaun. Það þarf að tryggja jöfn skipti í samfélaginu og ofurlaunastjórnendur sem eru aflögufærir eiga að leggja meira til samfélagsins. Jöfn skipti á þjóðarkökunni er forsenda sáttar í samfélaginu til lengri tíma! Miðstjórn RSÍ skorar á stjórnvöld að skipa fulltrúa launafólks af almennum vinnumarkaði í kjararáð.“