Stjórn Eikar fasteignafélags ætlar að leggja til á næsta aðalfundi að hlutafé félagsins verði hækkað til samræmis við markmið um stækkun og eflingu félagsins. Endanleg hækkun er óákveðin en tillaga stjórnar gerir ráð fyrir útgáfu til hækkunar eiginfjár um allt að tvo milljarða króna.

Aðalfundur fasteignafélagsins verður haldinn 11. apríl næstkomandi.

Í tilkynningu frá stjórn Eikar segir:

„Við ákvörðun stjórnar er fyrst og fremst stuðst við mat sem byggir á langtímaáætlun félagsins.  Í þeirri áætlun, sem grundvölluð er á núverandi eignasafni, gildum leigusamningum, fjármögnunarsamningum og markaðsleigu eins og hún er nú, kemur meðal annars fram, að öllu óbreyttu, að eiginfjárhlutfall félagsins muni hækka jafnt og þétt á tímabilinu og vera komið í 40,3% í lok árs 2020.  Jafnframt munu hreinar leigutekjur/reiknuðum vöxtum, sbr. sérstök skilyrði skuldabréfaflokksins EIK 12 01, hækka úr 2,11 á árinu 2013 upp í 2,73 á árinu 2020.  Að teknu tilliti til arðgreiðslna gerir áætlun ráð fyrir að staða handbærs fjár haldist yfir  450 milljónir í lok hvers árs.“