Tvö fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum eru að undirbúa mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun sjókvíaeldis, að því er kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Fiskeldi Austurlands, sem er með laxeldi í Berufirði, stefnir að stækkun þar og í Fáskrúðsfirði þannig að framleiðslugeta stöðvanna verði í heildina 24 þúsund tonn á ári. Er það stækkun um 13 þúsund tonn. Laxar fiskeldi hefur leyfi fyrir 6 þúsund tonna eldi í Reyðarfirði og stefnir að því að setja út seiði næsta vor. Fyrirtækið hefur hafið undirbúning að stækkun um 10 þúsund tonn.