Stjórn Stafa lífeyrissjóðs segir einungis hægt að tilnefna konu í stjórn sjóðsins. Ástæðan fyrir því er sú að til standi að auka við hlut kvenna í stjórninni í samræmi við fyrirmæli laga. Af sex stjórnarmönnum lífeyrissjóðs Stafa eru nú tvær konur á móti fjórum körlum. Þá er aðeins ein kona á móti fimm körlum í varastjórn lífeyrissjóðsins.
Stjórnin auglýsir í fjölmiðlum í dag aukaársfund og kjörfund á Grand hóteli 16. október næstkomandi. Eina málið á dagskrá fundarins er tillaga stjórnar um nýtt bráðabirgðaákvæði í samþykktum Stafa til að tryggja að hlutföll kynja í stjórn sjóðsins verði lögum samkvæmt.
Ákvæðið skilar góðum árangri
Landssamtök lífeyrissjóða minnti á lagaákvæðið um kynjakvóta í stjórnum lífeyrissjóða í byrjun mánaðar og sagði ákvæðið hafa skilað góðum árangri í að jafna kynjahlutföll. Sérstaklega er tekið fram að í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða eigi nú sæti fimm konur og fjórir karlar sem er veruleg breyting frá því sem áður var.
Lögin um kynjakvóta í stjórnum lífeyrissjóða gera kröfu um að hlutfall hvors kyns í stjórnum lífeyrissjóða skuli vera að minnsta kosti 40% en það felur í sér kröfu um 50% hlutfall hvors kyns í sjóðum með 4 eða 8 stjórnarmenn.