Viðskiptaráð hefur skilað umsögn til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um drög að frumvarpi póstþjónustu. Með fraumvarpsdrögunum er lagt til þess að einkaréttur ríkisins á sviði póstþjónustu verði lagður niður og opnað verði fyrir samkeppni á póstmarkaði. Í umsögninni kemur fram að Viðskiptaráð fagni þessu skrefi og tekur heilshugar undir meginefni frumvarpsins. Hægt er að lesa alla umsögnina hér.

Ráðið bendir á að Ísland er eina landið innan EES sem ekki hefur afnumið einkarétt ríkisins á sviði póstþjónustu og er fært rök fyrir því að tímabært sé að stíga skrefið til fulls. Enn fremur eru stjórnvöld hvött til þess að huga að breyttu eignarhaldi á Íslandspósti hf. „enda margvíslegar áskoranir sem fylgja því að starfrækja fyrirtæki í opinberri eigu á samkeppnismarkaði,“ að því er kemur fram í umsögninni.

Viðskiptaráð telur jafnframt að skilgreina ætti grundvallarmarkmið alþjónustu á póstmarkaði til framtíðar með þeim hætti að umgjörð stuðli að gagnsæi á markaði og virku samkeppnisumhverfi, tryggi viðunandi alþjónustu með lágmarkskostnaði fyrir hið opinbera og stuðli að hagkvæmum rekstri og eignarhaldi á póstmarkaði. Afnám einkaréttar er fyrsta skrefið í átt að því að ofangreindum markmiðum sé náð.