Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í dag með Ingvild Næss Stub, aðstoðarevrópumálaráðherra Noregs. Þau ræddu m.a. EES-samninginn, framkvæmd hans og hagsmunagæslu innan EES-samstarfsins auk þess að fara yfir breytta stefnu Noregs í málefnum EES og þær aðgerðir sem ný norsk ríkisstjórn hefur gripið til í því skyni að efla þátttöku og hagsmunagæslu Noregs á vettvangi EES.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að Gunnar Bragi hafi gert grein fyrir breyttum áherslum nýrrar ríkistjórnar Íslands í Evrópumálum og lagt áherslu á mikilvægi EES-samningsins sem grunn að samstarfi Íslands við Evrópusambandið.

Þá voru ráðherrarnir sammála um mikilvægi þess að þétta enn frekar samstarf Íslands og Noregs á vettvangi EES með það að markmiði að efla hagsmunagæslu EES-ríkjanna.