Stjórn Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) varar við því að teknar séu ákvarðanir í skyndingu um að RÚV fari af auglýsingamarkaði.

SÍA ítrekar þá skoðun að ákvarðanir um aðkomu RÚV að auglýsingamarkaði séu teknar með langtímasjónarmið í huga og ekki teknar í flýti.

"Þar sem eitt af hlutverkum aðildarstofa SÍA er að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna vill stjórn SÍA hvetja til þess að allt verði gert til þess að eðlileg samkeppni ríki á íslenskum auglýsingamarkaði.

Það er einnig hagur og réttur íslenskra neytenda að auglýsendur nái til viðskiptavina sinna með eins góðum og hagkvæmum hætti og kostur er hverju sinni. Þar skiptir máli að auglýsendur geti með nokkurri vissu gefið sér að auglýsingar í sjónvarpi berist til þeirra sem þeim er ætlað, en einnig og ekki síður að næg fjölbreytni ríki á auglýsingamarkaði til að eðlileg samkeppni þrífist. Þannig eru hagsmunir auglýsenda best tryggðir," segir í tilkynningunni.