Stofnendur Google, þeir Larry Page og Sergey Brin, segja að Google hafi ekki áhuga á að hefja innreið inn á heilbrigðismarkað í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að regluverk í kringum heilbrigðisstofnanir er of íþyngjandi að þeirra mati.
Þetta kom fram í viðtali þeirra við fjárfestinn Vinod Khosla. „Reglugerðarfarganið í kringum heilbrigðiskerfið er bara svo ofboðslega mikið. Það er bara ekki góður markaður til að vera á og það er ekki þannig sem ég vil verja tíma mínum,“ sagði Sergey Brin í samtali við Khosla. „Að mínu mati eru reglurnar hér í Bandaríkjunum svo íþyngjandi að það fælir frá mjög marga frumkvöðla,“ bætir Brin við.
Þeir telja ólíklegt að á meðan reglurnar eru jafn flóknar og ósveigjanlegar og raun ber vitni muni Google ekki beina rannsóknar- og þróunarstarfsemi að heilbrigðisgeiranum. Þá lýstu þeir áhyggjum sínum yfir því að lög og reglur í Bandaríkjunum væru almennt orðnar letjandi fyrir frumkvöðla.