Slitabú gjaldþrota flugfélagsins Wow air, flugvélaleigan Air Lease Corporation og þátttakendur í skuldabréfaútboði félagsins frá því í september 2018, ætla að láta reyna á að fá meint tjón sitt, vegna ákvarðana stjórnenda og stjórnar Wow air, bætt. ViðskiptaMogginn greinir frá þessu.

Tengjast allar kröfur ofangreindra aðila, með einum eða öðrum hætti, þeim björgunartilraunum sem hófust haustið 2018 og gengu fram í byrjun árs 2019 til að forða félaginu frá gjaldþroti. Samkvæmt frétt ViðskiptaMoggans nema kröfur aðilanna mörgum milljörðum króna. Misjafnt sé milli mála hvort bóta sé krafist úr hendi stjórnar Wow air, stjórnenda félagsins eða eingöngu forstjórans og eigandans, Skúla Mogensen.

Víðfeðmasta kraf­an, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um ViðskiptaMogg­ans, kemur frá slita­búi Wow air. Þannig teng­ist kraf­an meðferð fjár­muna fé­lags­ins, m.a. í tengsl­um við íbúðakaup í London, skulda­bréfa­út­boðið og milli­færsl­ur fjár­muna milli WOW air og Tít­ans Fjár­fest­ing­ar­fé­lags. Umrætt félag var móður­fé­lag Wow air og í fullri eigu forstjórans, Skúla Mogensen.

Uppfært - Borist hefur tilkynning frá fyrrverandi stjórnarmönnum Wow air:

Fyrir hönd fyrrverandi stjórnarmanna flugfélagsins WOW air viljum við óska eftir að eftirfarandi tilkynningu verði komið á framfæri í tengslum við umfjöllun Viðskiptamoggans og Mbl.is í dag:

Ítrekaðar rangfærslur í Viðskiptamogganum um störf WOW air og fyrrverandi stjórn

Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins og höfundur bókarinnar WOW – ris og fall flugfélags, hefur reglulega flutt fréttir af WOW air í Morgunblaðinu eða Viðskiptamogganum sem á stundum eru efnislega rangar og innihalda aðdróttanir sem nauðsynlegt er að bregðast við.

Rangt að stjórnendatrygging hafi verið keypt á ögurstundu

Í frétt Viðskiptamoggans í dag 25. mars, er frétt með fyrirsögninni „Sækja á 2,8 milljarða tryggingu“ sem er sett í undarlegt samhengi. Þar er því haldið fram að félagið hafi keypt stjórnendatryggingu á ögurstundu, sem er ekki aðeins villandi heldur beinlínis rangt. Á ögurstundu stendur fyrirtækjum ekki til boða að kaupa stjórnendatryggingar. Hið rétta er að stjórn og stjórnendur WOW air voru með stjórnendatryggingu frá fyrsta degi og hún var reglulega endurnýjuð, eins og aðrar tryggingar félagsins.

Ekki ný frétt heldur gömul

Það er eðlilegt að aðilar sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni í kjölfar gjaldþrots leiti leiða við að fá tjón sitt bætt. Það er einnig þekkt að það getur verið tvíbent að hafa stjórnendatryggingar, enda getur komið á daginn að kröfuhafar láti reyna á að sækja í trygginguna, sem þeir hefðu hugsanlega ekki gert ef slíkri tryggingu væri ekki til að dreifa.
Kröfur voru gerðar í trygginguna á síðasta ári um það leyti sem hún rann úr gildi, en ekkert hefur hins vegar gerst í málinu síðan - engar frekari kröfur hafa verið gerðar né nokkrar umleitanir átt sér stað.

Gert lítið úr björgunartilraunum

Þá er orðalagið í fréttinni “í veikburða tilraun til að forða félaginu frá gjaldþroti” mótsagnakennt enda segir það fyrr í fréttinni að björgunartilraunirnar hafi verið stórtækar. Tilraunir til að bjarga WOW air voru ekki veikburða og virðist ætlun höfundarins sú að gera lítið úr þeim aðgerðum sem farið var í til að reyna að bjarga félaginu. Það hafði gríðarlega mikla þýðingu fyrir framtíð félagsins að allir skyldu leggjast á eitt um björgun þess. Þetta ætti að vera hverjum sem er ljóst þegar nánast öll flugfélög heims standa nú í viðamiklum björgunaraðgerðum. En því miður fór sem fór með ömurlegum afleiðingum.

Þá hefur komið fram í Morgunblaðinu að stjórnin sé klofin og hafi eytt undanförnum mánuðum í að undirbúa varnir sínar vegna fram kominna krafna, sem er fjarri sannleikanum. Ítrekaður fréttaflutningur viðskiptaritstjóra Morgunblaðsins og höfundar bókarinnar um fall WOW air af málinu byggir því ýmist á rangfærslum eða endurteknu efni.

Fyrrum stjórnarmenn WOW air.