Fyrirtaka er í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í báðum málunum sem tengjast ákærum embættis sérstaks saksóknara á hendur sex fyrrverandi lykilstjórnendum og starfsmönnum gamla Landsbankans. Eftir því sem næst verður komist munu verjendur nokkurra sakborninga í málinu óska eftir fresti til að skila greinargerðum í málinu.

Málið snýst um hlutdeild fólksins í meintri markaðsmisnotkun í Landsbankanum í aðdraganda hruns, níu milljarða króna króna lánveitingar til félaganna Ímon og Azalea Resources Ltd í tengslum við kaup þeirra á hlutabréfum í bankanum. Ímon var í eigu fjárfestisins Magnúsar Ármann en Azalea Resources skráð á bresku Bresku Jómfrúreyjum og í eigu finnska fjárfestisins Ari Salmivuori, viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar. Björgólfur var einn af helstu hluthöfum gamla Landsbankans og sonur Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs gamla bankans.

Embætti sérstaks saksóknara gaf út ákæru í málinu í mars síðastliðnum á hendur sexmenningunum. Sakborningar eru Sigurjón Þ. Árnason,  fyrrverandi bankastjóri gamla Landsbankans, Elín Sigfúsdóttir, sem var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, og Steinþór Gunnarsson, sem var framkvæmdastjóri verðbréfasviðs gamla Landsbankans. Þá voru þeir Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður fyrirtækjasviðs gamla Landsbankans og miðlararnir Sindri Sveinsson og Júlíus Steinar Heiðarsson jafnframt ákærðir í málinu. Þingfesting var í málinu í apríl. Upphaflega var um eitt mál að ræða. Því var hins vegar skipt upp í tvö mál í haust.