Stjórn BSRB lýsir vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í ályktun sem samþykkt var á fundi á föstudaginn.


„Fyrstu verk nýrrar stjórnar voru að hafna milljarða tekjum frá útgerðinni og ferðaþjónustunni. Þess í stað á að rétta hallann með niðurskurði á opinberri þjónustu, afnámi vaxta á láni Seðlabankans og fyrirframgreiðslum úr þrotabúum föllnu bankanna," segir í ályktun  BSRB.


Stjórn BSRB gagnrýnir ennfremur að ríkisstjórnin hafi „einnig valið að framlengja ekki skatta á þá efnamestu, tekjustofna sem meira að segja Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur í nýlegri skýrslu sinni sagt að séu nauðsynlegir til að rétta af halla á ríkisrekstri og stuðla að frekari jöfnuði fólks. Þá mun boðuð tekjuskattslækkun á 2. skattþrepi aðeins koma þeim tekjuhærri til góða og í reynd hækka hlutfallslega skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin."


„Með því að hverfa frá lækkun skatta á auðmenn og útgerðir væri hægt að rétta heilbrigðiskerfið við og takast á við einhver þeirra fjölmörgu verkefni sem þegar þarfnast úrlausna. Slíkar aðgerðir gætu dregið úr þeim aðhaldskröfum sem settar eru fram í nýju fjárlagafrumvarpi og um leið tryggt heilbrigðis- og almannaþjónustunni það fjármagn sem nauðsynlegt er til að velferð landsmanna geti aftur orðið með því besta sem gerist."