Dómsmálaráðherrar Norðurlanda hittust í dag á fundi í Ystad í Svíþjóð þar sem barátta gegn barnaklámi á netinu var rædd.

Í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að ráðherrunum hafi verið kynnt áætlun norrænu ríkislögreglustjóranna um aðgerðir gegn barnaklámi sem samþykkt var á fundi þeirra í Reykjavík 18. ágúst.

Dómsmálaráðherrar Íslands og Noregs gerðu grein fyrir ákvörðun ríkisstjórna sinna um að sækja um aðild að Prüm-lögreglusamstarfi Evrópusambandslandanna (ESB). Fram kom að tilmælunum um aðild  hefði verið vel tekið af Frökkum sem fara með formennsku í ráðherraráði ESB.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra hafi leitt framsögu á fundinum um alþjóðlega glæpastarfsemi. Auk ráðherrans hafi Ragna Árnadóttir, settur ráðuneytisstjóri, og Bryndís Helgadóttir, lögfræðingur, setið fundinn fyrir Íslands hönd.

Næsti fundur ráðherranna verður haldinn á Íslandi sumarið 2009.