Íslenska krónan í höftum getur ekki verið framatíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef stefnt er að því að Íslendingar eigi kost á því að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni og afla þjóðinni tekna á alheimsmarkaði.

Þetta segir í drögum að ályktun efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins sem haldinn verður í lok febrúar.

Í drögunum kemur fram að nú, fimm árum eftir að gjaldeyrishöft voru sett á „til bráðabirgða“ og engin trúverðug lausn hafi verið sett fram um afnám þeirra, sé nauðsynlegt að Sjálfstæðisflokkurinn taki forystu um að kannaðir verði til þrautar allir möguleikar fyrir Ísland í gjaldeyrismálum.

„Landsfundur telur að Sjálfstæðisflokknum beri skylda til þess að setja afnám gjaldeyrishafta efst á forgangslista komist hann í ríkisstjórn. Til þess að svo megi vera telur landsfundur rétt að hafist verði handa við undirbúning um að taka í notkun alþjóðlega mynt á Íslandi í stað íslensku krónunnar,“ segir í drögunum.

„Alþjóðlegar myntir sem til greina gætu komið fyrir Ísland eru meðal annars Bandaríkjadalur, evra, Sterlingspund, norsk króna og Kanadadollar. Landsfundur telur eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn kanni sérstaklega þau kjör og valkosti sem bjóðast við upptöku Kanadadollars og Bandaríkjadals. Mjög ólíklegt er að útgáfulönd þessara mynta setji sig upp á móti því að Íslendingar notist við þeirra mynt. Sérstaklega ber að kanna möguleikann á vilja Kanadamanna til samstarfs og stuðnings við slíka gjaldmiðlabreytingu.“

Þá segir einnig í drögunum að með því að skipta út íslensku krónunni gefst íslenskum fyrirtækjum í raun algjört frelsi um hvaða gjaldmiðill henti best miðað við rekstur þeirra. Þar með væri gríðarlega kostnaðarsamri óvissu í íslensku viðskiptalífi eytt, segir í drögunum.

Þá segir jafnframt í drögunum að dregið verði úr vægi verðtryggingar á Íslandi. Eðlilegt sé að íslenskum almenningi standi til boða jafnt verðtryggð sem óverðtryggð lán.

„Verðtrygging neytendalána er ekki almennur valkostur í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Eins er nauðsynlegt að endurskoða þá þætti sem lagðir eru til grundvallar vísitöluhækkunar lána,“ segir í drögunum.

„Landsfundurinn áréttar að verðtryggingin er afsprengi slakrar peningastefnu á Íslandi í marga undanfarna áratugi. Til þess að unnt sé að draga úr vægi hennar, án þess að vaxtastig hækki umtalsvert, þarf að vera til staðar traust á gjaldmiðlinum. Ekki verður framhjá því litið að upptaka alþjóðlegrar myntar myndi gera verðtrygginguna óþarfa og um leið lækka vaxtabyrði og óvissu lánþega á Íslandi.“