Utanríkisráðherrar Íslands og Bretlands sammæltust í dag  um að ljúka viðræðum vegna IceSave, með öðrum hluteigandi aðilum, á ásættanlegan hátt fyrir báðar þjóðir, eins fljótt og kostur er.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund í Lundúnum með breskum starfsbróður sínum, David Miliband.

„Ráðherrarnir áttu hreinskiptnar og uppbyggilegar viðræður um óleyst úrlausnarefni og tvíhliða samskipti ríkjanna,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu en einnig kemur fram að viðræðunefndir undir forystu fjármálaráðuneyta þjóðanna munu fylgja fundi utanríkisráðherranna eftir.         Þá lögðu utanríkisráðherrarnir áherslu á mikilvægri góðra samskipta ríkjanna svo og aukinna samskipta á sviði öryggis- og varnarmála, Norðurslóða og endurnýjanlegrar orku.